Námskeið og vinnustofa um inngildingu og fjölmenningu

Æskulýðsvettvangurinn, í samstarfi við Semu Erlu Serdaroglu, aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og höfund þeirra verkfæra sem hér má finna, hefur þróað fræðslu um fjölmenningu og inngildingu í íþrótta- og æskulýðsstarfi og vinnustofu fyrir félög sem vilja stuðla að inngildinu í starfsemi sinni.

Námskeið um inngildingu og fjölmenningu í íþrótta- og æskulýðsstarfi

Á námskeiðinu er meðal annars fjallað um fjölmenningarleg samfélög, almennt sem og í íslensku samhengi. Fjallað er um nokkur mikilvæg hugtök, viðhorf og umræðuhefð sem og mismunandi birtingarmyndir fordóma, kynþáttaníðs og mismununar í íþrótta- og æskulýðsstarfi.

Einnig fjallað um ávinninginn af því að vera með inngildandi félag og starfsemi með börnum og ungmennum, áskoranir og hindranir sem standa í vegi fyrir þátttöku jaðarsetta barna og ungmenna og hvað þú getur gert til þess að félagið þitt sé opið, aðgengilegt og inngildandi.

Hægt er að hafa samband við Æskulýðsvettvanginn fyrir nánari upplýsingar og pantanir á námskeiðum.

Vinnustofa um inngildingu og fjölmenningu í íþrótta- og æskulýðsstarfi

Hægt er að panta vinnustofu fyrir íþrótta- og æskulýðsfélög sem og aðra sem starfa með börnum og ungmennum af erlendum uppruna og/eða með flóttabakgrunn sem hafa skuldbundið sig til þess að vinna að inngildingu í félaginu sínu og starfsemi og eru að taka sín fyrstu skref í slíkri vinnu eða vilja stöðumat og mögulega uppfærslu á því sem þegar er til staðar.

Vinnustofan er sniðin að hverjum hópi fyrir sig en getur sem dæmi samanstaðið af stuttri fræðslu um fjölmenningu og mikilvægi inngildingar í íþrótta- og æskulýðsstarfi, stöðumati á félaginu og starseminni með tilliti til inngildingar, aðstoð við hönnun og innleiðingu á stefnu um inngildingu og fjölmenningu, markmiðasetningu og aðgerðaráætlun til að stuðla að inngildingu, viðbragðsáætlun og gátlista fyrir félagið.

Hægt er að hafa samband við Semu Erlu fyrir nánari upplýsingar og pantanir á vinnustofu.